Hertz var valin besta bílaleigan á Íslandi hjá World Travel Awards í St. Pétursborg í Rússlandi. Þetta er í fyrsta sinn sem verðlaunin eru veitt í flokki bílaleiga á Íslandi en World Travel Awards eru virt verðlaun sem veitt eru í ferðaþjónustunni á heimsvísu.
„Það er gríðarlegur heiður fyrir okkur að fá viðurkenningu á því góða starfi sem starfsfólk okkar vinnur á hverjum degi,” segir Kristján Bergmann Sigurbjörnsson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Hertz á Íslandi í fréttatilkynningu.
Á annað hundrað bílaleigur eru starfræktar á Íslandi. Fimm bílaleigur voru tilnefndar til verðlauna hjá World Travel Awards og stóð Hertz uppi sem sigurvegari.
„Það er mikil samkeppni á bílaleigumarkaðinum á Íslandi en verðlaunin eru staðfesting á þeirri frábæru þjónustu og þeim gæðum sem Hertz hefur upp á að bjóða,” segir Kristján Bergmann.
Í ár veitti World Travel Awards verðlaun í níu flokkum á Íslandi. Hótel Borg, Ion á Nesjavöllum og Reykjavik4you Apartments fengu gull í sínum flokkum þriðja árið í röð en var Hótel Saga valið besta hótelið fyrir viðskiptaferðir fjórða skiptið í röð. Þetta er í fyrsta sinn sem verðlaun eru veitt í flokki bílaleiga en einnig voru í fyrsta sinn veitt verðlaun í flokki ferðaskrifstofa og þyrlufyrirtækja á Íslandi.
World Travel verðlaununum var komið á fót árið 1993 til að veita viðurkenningar í öllum geirum ferðaþjónustunnar um allan heim.
Sigurvegarar World Travel Awards á Íslandi árið 2017:
- Besta hönnunarhótelið — ION Luxury Adventure Hotel
- Besta hótelið fyrir vinnuferðir — Radisson Blu Saga
- Besta hótelið — Hótel Borg
- Besti dvalarstaðurinn (Resort) — Hótel Rangá
- Besta íbúðahótelið — Reykjavik4you Apartments
- Besta hótelaðstaðan (Hotel residence) — Hótel Reykjavík Centrum
- Besta bílaleigan — Hertz
- Besta þyrluþjónustan — Norðurflug
- Besta ferðaskrifstofan á áfangastað — Iceland Travel